99. fundur
07. júní 2018 kl. 16:30 - 16:59 á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Fundinn sátu:
Hjördís Ýr Johnsonaðalmaður
Hreiðar Oddssonaðalmaður
Sigurður M Grétarssonaðalmaður
Andri Steinn Hilmarssonaðalfulltrúi
Hreggviður Norðdahláheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bjarki Þórir Valbergstarfsmaður nefndar
Birgir Hlynur Sigurðssonskipulagsstjóri
Fundargerð ritaði:Bjarki Valbergumhverfisfulltrúi
Dagskrá
Almenn erindi
1.18051067 - Hjólabrettaskál í Kópavogi
Lagt fram erindi Brettafélag Kópavogs varðandi hjólabrettaskál í Kópavogi dags. 26. mars 2018.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir á framlagðar tillögur og vísar erindinu til Umhverfissviðs til afgreiðslu. Hreiðar Oddsson bókar að hann fagnar því að frumkvæði íbúa séu nýtt og vonar að hjólabrettaskál rísi í Kópavogi von bráðar. Kostnaðarliðum erindisins vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar og gerðar næstu fjárhagsáætlunar. Umhverfisfulltrúa falið að skoða mögulegar staðsetningar.
Almenn erindi
2.18051314 - Umhverfisviðurkenningar 2018
Lögð fram tillaga að umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2018.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögur að Umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2018.
Almenn erindi
3.1712626 - Bláfáni 2018
Frá Landvernd lögð fram niðurstaða umsóknar um Bláfána 2018. Lögð fram tillaga Landverndar að móttöku Bláfána 2018.
Umhverfisfulltrúa falið að skoða mögulegar staðsetningar.