- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Lagt fram til kynningar. Jafnréttisráðgjafi mun lista upp þau verkefni sem eru á áætlun árið 2012.
Niðurstaða athugunar á kynjaskiptingu í nefndum, ráðum og stjórnum eftir meirihlutaskipti og kosningar í nefndir leiðir í ljós að 65% nefndarmanna eru karlar og 35% nefndarmanna konur.
Jafnréttis- og mannréttindaráð skorar á bæjarstjórn Kópavogs að jafna hlut kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins. Ráðið vísar til þess að samkvæmt jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar ber að hafa 2:3 skiptingu í fimm manna nefndum og 1:2 í þriggja manna nefndum. Ráðið óskar eftir skýringum á ástæðum þess að jafnréttisstefnunni var ekki fylgt við kosningar í nefndir.
Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar samstarfi við MK um jafnréttisviku í skólanum og lýsir yfir vilja sínum til þess að taka þátt í því samstarfi með sama hætti og undanfarin ár.
Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar öllum sem komu að verkefninu. Samþykkt er að styrkja verkefnið um kr. 75.000.
Bæjarráð vísar tillögunum verkefnahóps SSH um málefni innflytjenda til jafnréttis- og mannréttindanefndar, skólanefndar, leikskólanefndar og félagsmálaráðs til umsagnar.
Jafnréttis- og mannréttindaráð tekur undir tillögur verkefnahópsins.
Fundi slitið - kl. 18:00.
Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir er kosin formaður nefndarinnar og Una Björg Einarsdóttir varaformaður.