Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 29. mars 2023 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 24. mars 2023 þar sem umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar dags. 13. febrúar 2023 fyrir hönd lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Lyngbrekku er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir hækkun núverandi einbýlishúss á lóðinni um eina hæð, samtals 66,2 m². Jafnframt er gert ráð fyrir 39 m2 þaksvölum á efri hæð sem snúa til austurs. Hámarkshæð verður eftir breytingu 6,2 m með þakhalla til suðurs. Byggingarmagn á lóðinni eykst úr 174 m² í 246 m² við breytinguna. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,23 í 0,33.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1 til 23 við Lyngbrekku og nr. 67, 69, 69a, 71, 73a, 73b, 73d, 75, 77, 79a, 79b, 79c og 79d við Álfhólsveg.
Kynning hefst þann 16. maí 2023 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á netfangið skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 21. júní 2023.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.