Breytingar á hámarkshraða

Vegir í Kópavogi.
Vegir í Kópavogi.

Hámarkshraða á götum í Kópavogi hefur verið breytt þannig að umferðarhraði tekur mið af umhverfi og virkni gatna. Markmiðið er að draga úr líkum á slysum. 

Breytingarnar eru í samræmi við hámarkshraðaáætlun sem unnin var á grundvelli umferðarmælinga og slysaskráninga síðustu ára og draga mið af aðstæðum á hverjum stað. Einnig var horft til hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkurborgar til að gæta að samræmi í umferðarskipulagi á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta þýðir í reynd  lækkun á hámarkshraða í 57 götum. Sjá yfirlit yfir götuhraða í Kópavogi fyrir og eftir breytingar.

  • Húsagötur 30 km/klst. Húsagötur eiga fyrst og fremst að veita aðgang að húsum og starfsemi við viðkomandi götu, þar verður hámarkshraði að öllu jöfnu ekki hærri en 30 km/klst.
  • Safngötur 40 km/klst. Safngötur sem eru helstu umferðargötur innan hvers hverfis og tengja húsagötur við tengi‐ og stofnbrautir, þar verður hámarkshraði að öllu jöfnu ekki hærri en 40 km/klst.
  • Tengibrautir 40 km/klst. Tengibrautir tengja einstaka bæjarhluta við stofnbrautakerfið og nálæga bæjarhluta saman innbyrðis og eru helstu umferðargötur í hverjum bæjarhluta, þar verður hámarkshraði að öllu jöfnu ekki hærri en 40 km/klst.
  • Stofnbrautir 50 km/klst. Stofnbrautir eru aðalumferðarbrautir í þéttbýli og tengjast stofnvegakerfi utan þéttbýlis, þar verður hámarkshraði að öllu jöfnu ekki hærri en 50 km/klst.

Vinna við að skipta út skiltum þar sem þess er þörf er ekki hafin en stefnt er á að hefja hana eftir páska. Þá verður máluðum merkingum á götum einnig breytt í vor og sumar.